Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Verkefnastjóri á alþjóðaskrifstofu LHÍ

Listaháskóli Íslands leitar að skipulagðri og áreiðanlegri manneskju með ríka þjónustulund í starf verkefnastjóra á alþjóðaskrifstofu Listaháskóla Íslands.
Um 75% starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. ágúst.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Upplýsingagjöf, stuðningur og ráðgjöf til nemenda skólans um skiptinám og styrki til námsdvalar erlendis
  • Stuðningur við kennara vegna námsferða með nemendur
  • Umsýsla og skráningar vegna skiptináms og starfsnáms
  • Vinna við alþjóðleg samstarfsverkefni
  • Þátttaka í viðburðum 
  • Miðlun upplýsinga um alþjóðasamstarf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Sjálfstæð vinnubrögð, sveigjanleiki og afbragðs samskiptahæfni
  • Gott vald á ensku, í töluðu og rituðu máli
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Reynsla af vinnu með Erasmus+ er kostur
  • Reynsla af skráningu í Beneficiary Module er kostur
  • Góð íslenskukunnátta er kostur
  • Frekari tungumálakunnátta er kostur
Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Katrín Johnson mannauðsstjóri í tölvupósti: [email protected] og Björg Stefánsdóttir, forstöðumaður alþjóðaskrifstofu: [email protected].

Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań1. June 2026
Znajomość języków
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
islandzkiislandzki
Opcjonalnie
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe