
Samkaup
Samkaup er framsækið verslunarfyrirtæki sem er leiðandi í viðskiptaháttum, vörugæðum og þjónustu. Samkaup hf reka yfir 60 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland.
Samkaup leggur áherslu á að vera eftirsóttur vinnustaður, með öfluga framlínu þar sem gildi fyrirtækisins, Kaupmennska, Áræðni, Sveigjanleiki og Samvinna eru leiðarljós í öllu starfi.
Samkaup er rekstrarfélag á neytendavörumarkaði með virkt hlutverk í samfélaginu. Hlutverk Samkaupa er að tryggja neytendum vörugæði, góða þjónustu og fjölbreytt vöruval á eins hagstæðu verði og völ er á og með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.
Samkaup skal vera þekkt fyrir að fara alla leið í þágu vörugæða og þjónustu ásamt því að vera í fararbroddi í nýsköpun sem skapar tækifæri fyrir viðskiptavini, samfélag og starfsfólk.

Sérfræðingur í birgða- og tollamálum
Samkaup leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi til starfa á innkaupa- og vöruhúsasviði félagsins. Starfið er staðsett á aðalskrifstofu Samkaupa að Hagasmára 1 í Kópavogi.
Um er að ræða spennandi og ábyrgðarmikið starf í öflugu teymi þar sem reynir á skipulag, nákvæmni og góða yfirsýn, auk þess sem starfið býður upp á möguleika til starfsþróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tollskýrslugerð og samskipti tengd innflutningi
- Verðútreikningar og eftirfylgni
- Birgðabókhald og afstemmingar
- Umsjón og yfirferð gagna
- Önnur tilfallandi verkefni á sviðinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af tollskýrslugerð er kostur
- Reynsla af notkun Business Central er kostur
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð skipulagshæfni
- Frumkvæði og ábyrgðarkennd
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör í verslunum
- Velferðarþjónusta
- Heilsustyrkur
Utworzono ofertę pracy21. May 2026
Termin nadsyłania podań4. June 2026
Znajomość języków
AngielskiWymagane
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Hagasmára 1
Rodzaj pracy
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Akureyri

Sjóðstjóri
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Áhugaverð tækifæri fyrir sérfræðinga
Landhelgisgæsla Íslands

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær

Sérfræðingur í reikningshaldi og uppgjörum
ALM Verðbréf hf.

Skrifstofustarf hjá flutningafyrirtæki
Fraktlausnir ehf

Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
Deloitte

Viðskiptastjóri - Samskip innanlands
Samskip

Teymisstjóri á leyfasviði
Útlendingastofnun

Sölumaður á glerlausnum Samverks
Glerverksmiðjan Samverk

Sérfræðingur - Bókhaldsþjónusta
Fjársýslan

Ertu sérfræðingur í að halda utan um vaktir og skipulag?
Avians