Víbrur ehf.
Víbrur ehf.

Sölu- og verkefnastjóri

Víbrur leitar að öflugum og metnaðarfullum sölu- og verkefnastjóra til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér sölu, samskipti við viðskiptavini, verkefnastjórn og eftirfylgni með framleiðslu markaðsefnis. Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka samskiptahæfni, brennur fyrir markaðsmálum og getur haldið utan um mörg verkefni í hröðu og skapandi umhverfi.

Víbrur er framleiðslufyrirtæki og markaðsstofa sem sérhæfir sig í framleiðslu á efni fyrir samfélagsmiðla og stafræna miðla. Við vinnum með fjölbreyttum fyrirtækjum og vörumerkjum að hugmyndavinnu, framleiðslu og dreifingu efnis sem nær til markhópa og skilar árangri. Við leggjum áherslu á fagmennsku, frumkvæði, sköpunargleði og hraða framkvæmd. Um er að ræða starf í verktöku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með söluferli og eftirfylgni við nýja og núverandi viðskiptavini.
  • Tilboðsgerð, verðlagning og samningaviðræður.
  • Verkefnastýring markaðs- og framleiðsluverkefna frá hugmynd til afhendingar.
  • Samskipti við viðskiptavini, tökulið, áhrifavalda og aðra samstarfsaðila.
  • Skipulagning tökudaga, framleiðsluáætlana og birtinga.
  • Eftirfylgni með verkefnum, kostnaði, skilafrestum og gæðum.
  • Þátttaka í þróun þjónustu, vinnuferla og vexti fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu, verkefnastjórnun eða markaðsmálum.
  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.
  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna með mörg verkefni samtímis og ná árangri undir álagi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Áhugi á markaðssetningu, samfélagsmiðlum og skapandi verkefnum.
  • Frumkvæði, metnaður og sterk ábyrgðarkennd.
Utworzono ofertę pracy25. May 2026
Termin nadsyłania podań20. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Sprzedaż
Odpowiada
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe