Norconsult ehf.
Norconsult ehf.
Norconsult ehf.

Verk- eða Tæknifræðingur óskast á Framkvæmdasvið

Norconsult á íslandi leitar að metnaðarfullum byggingarverk- eða tæknifræðingi inn á framkvæmdasvið fyrirtækisins. Starfið er mjög fjölbreytt og áhugavert.

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Kópavogi, en einnig er möguleiki á að starfa frá útibúinu á Selfossi.

Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með um 7000 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á Íslandi starfa um 25 manns við verkfræði og að auki 60 við arkitektúr, fyrirtækin eru rekin sem sjálfstæðar einingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þáttaka í útboðum
  • Landmælingar
  • Eftirlit með framkvæmdum
  • Ráðgjöf í tengslum við hönnun mannvirkja
  • Samskipti við verktaka, hönnuði mannvirkja og aðra hagaðila
  • Framvindueftirlit, verkfundir og úttektir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í byggingarverk- eða tæknifræði
  • Reynsla af verklegum framkvæmdun
  • Reynsla við framkvæmdareftirlit er kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar, drifkraftur og metnaður
  • Góð þekking á íslenskum byggingarmarkaði

Fríðindi í starfi

Hreyfistyrkur, samgöngustyrkur, símastyrkur ásamt símaáskrift og heimanettengingu, svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið er að megninu í eigu starfsmanna sinna og býðst öllum starfsmönnum árleg fríðindi til hlutabréfakaupa í fyrirtækinu á sérkjörum. Sveigjanlegur vinnutími í vinalegu umhverfi og í hjarta Kópavogs.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn www.norconsult.is

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Þorgeir Hólm Ólafsson, [email protected]

Utworzono ofertę pracy18. July 2025
Termin nadsyłania podań8. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Hlíðasmári 4, 201 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe