

Vaktmaður / húsvarsla í Laugardalshöll
Lifandi og fjölbreytt
Vilt þú starfa með okkur í lifandi og fjölbreyttu umhverfi í Laugardalshöll.
Leitað er að duglegum, þjónustulunduðum, handlögnum og skipulögðum einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti og sýnir frumkvæði í verki. Æskilegt er að umsækjandi tali og skilji íslensku, sé eldri en 25 ára og geti hafið störf sem fyrst.
Um 100% starf er að ræða og unnið er á 12 tíma vöktum, 2-2-3.
Vinnutími virka daga er 11:00 - 23:00, um helgar 9:00 - 18:00
Möguleiki er á tilfallandi aukavinnu eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð á daglegri húsvörslu
• Þjónusta við notendur / gesti hússins
• Almennt viðhald og umhirða innan og utandyra
• Smáviðgerðir og viðhald á tækjabúnaði
• Viðhald á innanstokksmunum og búnaði hússins
• Almenn þrif / vélþrif
• Þjónusta við viðburðahaldara
• Önnur fjölbreytt og tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Vera með góða þjónustulund og almenna tækjakunnáttu.
• Skipulögð vinnubrögð.
• Hafa frumkvæði og sýna drifkraft.
• Vera handlaginn og úrræðagóð/ur
• Góð samskiptahæfni, sveigjanleiki og rík þjónustulund
• Reynsla af umsjón fasteigna er kostur
• Stundvísi, snyrtimennska og nákvæmni í starfi.
• Hreint sakavottorð og kennitala er skilyrði
Umsóknir skulu merktar „ Lifandi vinnustaður “.
Mikilvægt er að fylla út umsókn með ítarlegum upplýsingum ásamt ferilskrá með mynd af umsækjanda, menntun og fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi vill taka fram.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2025.
Uppl. skal senda á póstfang [email protected]
Nánari upplýsingar gefur Valgeir alla virka daga milli kl.10:00 – 16:00 í síma 585-3308. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið [email protected]
islandzki
Angielski










