Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tækjamaður - Þjónustumiðstöð

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tækjamann í þjónustumiðstöð. Þjónustumiðstöð heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið og er staðsett að Norðurhellu 2. Um er að ræða 100% stöðugildi í dagvinnu, auk bakvakta.

Í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar eru 20 stöðugildi og starfa starfsmenn við mjög fjölbreytt viðhaldsverkefni á svæðum bæjarins sem og við stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Viðhald og viðgerðir á götum, göngustígum, niðurföllum, regnvatnslögnum o.fl.
  • Snjómokstur og hálkueyðing á götum og göngustígum
  • Viðhald, umhirða og viðgerðir á opnum svæðum og á stofnanalóðum
  • Viðhald, viðgerðir, umhirða og eftirlit með eignum sem tilheyra bænum
  • Vinna við hátíðarhöld og viðburði á vegum bæjarins
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meiraprófsréttindi C eða C1
  • Vinnuvélaréttindi
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Marktæk og góð reynsla af akstri stærri tækja
  • Jákvætt viðmót þjónustulund, samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
  • Góð Íslenskukunnátta
  • Enskukunnátta kostur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafsteinn Viktorsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: [email protected] og Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í síma 585-5670 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]

Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 22. ágúst 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Utworzono ofertę pracy19. August 2025
Termin nadsyłania podań22. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe