Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Sumarstarf - Afgreiðsla umsókna um hjálpartæki (kjörið fyrir nema í sjúkraþjálfunarfræðum)

Sjúkratryggingar leita að öflugum og áhugasömum starfsmanni í sumarstarf við afgreiðslu umsókna um hjálpartæki hjá stofnuninni. Starfið er kjörið fyrir nemanda á þriðja ári í sjúkraþjálfunarfræðum sem vill öðlast innsýn í starfsemi opinberrar heilbrigðisþjónustu og taka þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf og sjálfstæði einstaklinga.

Sjúkratryggingar eru lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi sem tryggir réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð og afgreiðsla umsókna um hjálpartæki
  • Þátttaka í mati á þörf fyrir hjálpartæki
  • Samstarf við starfsfólk hjálpartækjamiðstöðvar og aðra sérfræðinga
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt nánara skipulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nemi á þriðja ári í sjúkraþjálfunarfræðum
  • Áhugi á hjálpartækjum og þjónustu við notendur
  • Jákvæðni og góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Gott vald á íslenskri tungu
Utworzono ofertę pracy10. April 2026
Termin nadsyłania podań20. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkie
Środowisko pracy
Odpowiada
Zawody
Tagi zawodowe