
Garri
Garri er öflugt þjónustufyrirtæki í innflutningi á gæða matvörum, umbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingarekstur, hótel, fyrirtæki og stofnanir.
Við höfum ástríðu fyrir okkar starfi og erum vakandi fyrir nýjungum á markaði, vöruframboði og tæknilausnum. Við leggjum áherslu á sjálfbærni, stöðugar umbætur, ábyrga stjórnarhætti og eflingu mannauðs, með gildi Garra að leiðarljósi. Hjá Garra starfa um 100 manns.

Starfsmaður í móttöku þurr- og kælivöru í vöruhúsi
Vilt þú vera hluti af frábæru teymi?
Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem nýtur þess að vinna í fjölbreyttu umhverfi, hefur metnað fyrir að veita framúrskarandi þjónustu og vill taka þátt í að einfalda daginn fyrir viðskiptavini og samstarfsfólk.
Hjá okkur færðu að starfa í öflugu og stuðningsríku umhverfi þar sem heiðarleiki, áreiðanleiki og ástríða eru höfð að leiðarljósi — og þar sem samvinna, gleði og fagmennska fara saman.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við móttöku vara í þurrvöru og kæli ásamt þurrvöruteymi.
- Þróun og eftirfylgni verklags í vörumóttöku þurr- og kælivöru lagers.
- Fyrirmynd í öryggismálum og eftirfylgni með öryggi starfsmanna.
- Samráð við innkaupadeild vegna nýrra vara og skipulags.
- Eftirlit með hitastigi kæliklefa og hitastigi við móttöku vöru.
- Eftirlit með viðhaldi og þrifum á þurrvöru- og kælivöru lager í samráði við öryggis- og vöruhúsastjóra.
- Kynna sér og þekkja vörur Garra vel.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leiðtogahæfni og rík þjónustulund.
- Stundvísi, áreiðanleiki og sterk öryggisvitund.
- Sveigjanleiki, aðlögunarhæfni og metnaður í starfi.
- Lyftararéttindi skilyrði
- Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg.
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af vörum Garra.
- Íþrótta- og sálfræðistyrkur.
- Árleg heilsufarsmæling og ráðgjöf.
- Mötuneyti með hollum og fjölbreyttum mat.
- Frábærir samstarfsfélagar & öflugt starfsmannafélag.
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podań10. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
RzetelnośćBez kryminalnej przeszłościPozytywne nastawieniePraca w magazynieUprawnienia kierowcy wózka widłowegoPraca zespołowa
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Starf í vöruhúsi
GÓRILLA VÖRUHÚS

Starfsmaður í vöruhús Vörumiðlunar í Borgarnesi
Vörumiðlun ehf

Starfsmaður í verslun og lager Ellingsen
S4S - Ellingsen

Útkeyrsla og lager
Autoparts.is

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Gæludýr.is AKUREYRI
Waterfront ehf

Sumarstarf í vöruhúsi - Byko Kjalarvogi
Byko

Fagkaup óskar eftir þjónustu og sölufulltrúum
Fagkaup þjónustudeild

Lagerstarf
Sölufélag garðyrkjumanna ehf.

Öflugur bílstjóri óskast í sendibílavinnu
Akstur og flutningar

Starfsmaður í vöruhús JYSK
JYSK