
S4S - Ellingsen
Ellingsen var stofnað árið 1916 af Othar Ellingsen og var meginhlutverk fyrirtækisins sérhæfing í sölu á veiðarfærum og öðru því sem tengdist útgerð, en í seinni tíð eða frá árinu 1990 var áherslum í verslun breytt í að selja útivistarvörur.
Árið 2017 keypti S4S ehf verslun Ellingsen og síðan þá hafa orðið miklar breytingar á versluninni.
Ellingsen er í dag útivistaverslun fyrir alla fjölskylduna þar sem fólk getur gengið að góðri þjónustu og vöruúrvali. Rafhjólasetur Ellingsen var opnað árið 2020 og fer ört stækkandi.
Verslanir Ellingsen eru í Reykjavík, á Akureyri auk vefverslunarinnar www.ellingsen.is.
Hjá S4S starfa um 180 manns og hefur fyrirtækið margoft hlotið viðurkenningu VR sem fyrirmyndavinnustaður auk þess að hafa verið valið fyrirtæki ársins. Þá hefur S4S fengið viðurkenningu Creditinfo um fyrirmyndarfyrirtæki árlega undanfarin ár.

Starfsmaður í verslun og lager Ellingsen
S4S leitar að öflugum og metnaðarfullum einstakling í verslun í Ellingsen Fiskislóð. Um fullt starf er að ræða.
Starfsmaður hefur umsjón með daglegum rekstri vörulagers, afgreiðslu á pöntunum, móttöku á vörum og sölu og þjónustu í verslun.
Vinnutími er alla virka daga kl. 9-17.
Við leitum að manneskju, 25 ára eða eldri, með mikla skipulagshæfileika, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði. Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta í verslun.
- Dagleg umsjón með birgðahaldi og vöruflæði lagers.
- Móttaka og afhending á vörum ásamt skráningu og tiltekt á vörum.
- Umsjón með umhirðu lagersvæðis.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Úrræðagóður starfsmaður, jákvæður og lipur í mannlegum samskiptum.
- Búi yfir skipulagshæfileikum, sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði.
- Hafi þjónustulund og sé laghentur.
- Góð tölvufærni, reynsla af Navision er kostur.
- Reynsla af vöru- og lagerstjórnun er kostur.
- Vinnur vel undir álagi.
- Stundvísi og góð framkoma.
- Sveigjanleiki.
Utworzono ofertę pracy28. April 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Fiskislóð 1, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
RecepcjaInwentaryzacjaDynamics NAVInicjatywaUczciwośćBez kryminalnej przeszłościPozytywne nastawienieAmbicjaMicrosoft ExcelMicrosoft OutlookMicrosoft WordNavisionNiepalącyKomunikacja telefonicznaKomunikacja przez e-mailSumiennośćSamodzielność w pracyOrganizacjaPunktualnośćElastycznośćPraca zespołowaSkrupulatnośćpraca pod presjąWindowsNastawienie do klientaCierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Starfsmaður í móttöku þurr- og kælivöru í vöruhúsi
Garri

Starf í vöruhúsi
GÓRILLA VÖRUHÚS

Starfsmenn í tímavinnu - Bókasafn
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður í vöruhús Vörumiðlunar í Borgarnesi
Vörumiðlun ehf

Verslunarstjóri - Fullt starf
Joe & the juice

Útkeyrsla og lager
Autoparts.is

Sölufulltrúi í Icewear Hveragerði
ICEWEAR

Barþjónar á Brons
Brons

Verslunarstjóri í Sportís
Sportís ehf

Meiraprófsbílstjóri
Raftækjalagerinn

Öryggisvörður
Max Security

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf