Waterfront ehf
Waterfront ehf

Gæludýr.is AKUREYRI

Við hjá Gæludýr.is á Akureyri leitum að hressum og öflugum starfsmanni.

Við þurfum einn aðila sem getur:

  • Unnið hlutastarf í sumar á virkum dögum
  • Unnið annan hvern laugardag til framtíðar
  • Verið sveigjanlegur og tekið aukavaktir á virkum dögum næsta vetur ef upp koma veikindi eða annað

Hvað felst í starfinu?

  • Afgreiðsla og ráðgjöf við viðskiptavini
  • Áfyllingar af lager
  • Halda versluninni snyrtilegri

Starfið gæti hentað þér ef:

  • Þú ert stundvís
  • Þú sýnir frumkvæði
  • Getur tekið vaktir á virkum dögum næsta vetur ef ,,lífið gerist" í versluninni.
  • Þú sýnir jákvæðni og þjónustulund
  • Ef þú ert að leita að hlutastarfi
  • Sækist eftir fjölbreyttu starfi
  • Vilt hreyfingu í starfinu

Starfið hentar ekki ef:

  • Þú ert með bakveiki þar sem starfið getur verið líkamlega krefjandi
  • Þú verður með þétta stundatöflu næsta vetur

Við lofum:

  • Góðri fræðslu
  • Skemmtilegu vinnuumhverfi með miklu gríni
  • Fjölbreyttum vinnudegi
  • Góðu samstarfsfólki sem styður þegar reynir á

Hjá Gæludýr.is vinnur hress hópur fólks sem á það sameiginlegt að vera miklir dýravinir.
Við erum að leita að samviskusömum, metnaðarfullum, stundvísum, jákvæðum, heiðarlegum og hressum dýravinum sem vilja slást í hópinn.

Athugið að vel unnin ferilskrá með mynd og öllum upplýsingum sem og reynslu og þekkingu á gæludýrum gerir góða umsókn betri.

Viðkomandi þarf að tala góða íslensku og geta hafið störf sem fyrst

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og ráðgjöf í verslun
  • Þrif
  • Almenn lagerstörf & áfylling í verslun
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Íslenskukunnátta nauðsyn
  • Frumkvæði
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Stundvísi
  • Áreiðanleiki
Utworzono ofertę pracy21. April 2026
Termin nadsyłania podańŻaden
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Baldursnes 8, 603 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Praca w magazyniePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.Punktualność
Zawody
Tagi zawodowe