Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 30% starf þar sem unnið er aðra hverja helgi á dag- og kvöldvöktum með möguleika á auknu starfshlutfalli í sumar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Aðgengi að ökutæki skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið [email protected] eða í síma 585-5765.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Utworzono ofertę pracy30. January 2026
Termin nadsyłania podań15. February 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Smárahvammur 3, 220 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe