

Síminn leitar að gagnagreinanda (e. Data Analyst)
Síminn leitar að gagnadrifnum og forvitnum sérfræðingi í gagnagreiningu (e. Data Analyst) til að bætast í hóp öflugra sérfræðinga á Tækniþróunarsviði.
Gagnagreinandi er hluti af gagnateymi Símans og vinnur að því að umbreyta gögnum í innsýn sem styður við stefnu, rekstur og þjónustu fyrirtækisins.
Starfið felur í sér að vinna með fjölbreytt gögn, greina þróun og mynstur og koma niðurstöðum á framfæri með mælaborðum og greiningum sem auðvelda upplýsta ákvarðanatöku á öllum stigum fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á gögnum, vinnur markvisst og nýtur þess að þýða flókin gögn yfir í skýrar, gagnlegar og sjónrænar niðurstöður. Ef þú nýtur þess að leysa vandamál með gagnadrifinni hugsun og vilt starfa í teymi þar sem tækni, innsýn og nýsköpun mætast, þá erum við að leita að þér.
- Hanna, þróa og viðhalda mælaborðum og skýrslum sem styðja við rekstur og stefnumótun
- Framkvæma greiningar á lykiltölum úr rekstri og þjónustu Símans
- Vinna með gögn úr gagnavöruhúsi til að greina þróun, frávik og tækifæri til umbóta
- Framkvæma framlegðar- og rekstrargreiningar og styðja við stefnumótandi ákvarðanir
- Koma upplýsingum á framfæri á skýran og sjónrænan hátt til notenda og stjórnenda
- Samstarf við gagnateymi og viðskiptaeiningar um þróun, forgangsröðun og nýtingu gagna
- Viðhalda gæðum, samræmi og áreiðanleika greininga og skýrslna
- Styðja við gagnadrifna menningu með fræðslu, ráðgjöf og góðum vinnubrögðum
- Önnur tilfallandi verkefni
- Háskólamenntun í tölfræði, viðskiptafræði, verkfræði, skyldum greinum eða sambærileg starfsreynsla
- Reynsla af gagnagreiningu og uppsetningu mælaborða (t.d. Power BI eða sambærilegum verkfærum)
- Þekking á SQL og skilningur á gagnalíkönum
- Góð færni í Excel og greiningartólum
- Geta til að útskýra flókin gögn á einfaldan og hagnýtan hátt
- Skilningur á gagnastjórnun, gæðaviðmiðum og GDPR er kostur
- Skipulagshæfni, nákvæmni og lipur samskiptatækni
- Góð samskiptafærni og hæfileiki til að vinna þvert á teymi og deildir
- Góð greiningarhæfni og forvitni gagnvart gögnum
- Hæfni til að koma flóknum upplýsingum á framfæri á einfaldan og sjónrænan hátt
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu byggða á fyrsta flokks tækni. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta jákvætt, árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika.
Sótt er um starfið á vef Símans. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2025.
Nánari upplýsingar veitir [email protected]
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.
islandzki
Angielski










