Sérnámsstaða í ofnæmis- og ónæmislækningum
Laus er til umsóknar sérnámsstaða í ofnæmis-og ónæmislækningum. Um er að ræða fullt sérnám að lokinni MRCP gráðu í lyflækningum eða sem undirsérgrein lyflækninga eftir full sérfræðiréttindi í lyflækningum.
Sérnámið er byggt á íslenskri marklýsingu, sem unnin er út frá grunni marklýsingar UEMS, og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið er í heild þrjú ár, það fer fram á Landspítala fyrstu tvö árin en síðan er gert ráð fyrir að viðkomandi læknir fari erlendis og ljúki tólf mánaða þjálfun. Sérnám í ofnæmis- og ónæmislækningum fer fram á Landspítala auk þess sem erlenda námsvist þarf til að ljúka fullgildu námi.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 23. febrúar en fimmtudaginn 26. febrúar er móttökudagur sérnáms, upphaf starfs getur einnig verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar.
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði og upplýsingar um sérnám á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Wymagane wykształcenie i kwalifikacje
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Íslenskt sérfræðilækningaleyfi í lyflækningum eða MRCP gráðu í lyflækningum
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Główne zadania i obowiązki
Vinna og nám á göngudeildum og legudeildum ásamt vaktþjónustu almennra lyflækninga og undirsérgreinar skv. marklýsingu
Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámi, sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati