
Sérfræðingur í afgreiðslu leyfa
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfni og með áhuga á náttúruvernd og umhverfismálum til að sinna afgreiðslu leyfisumsókna á friðlýstum svæðum ásamt öðrum verkefnum innan stjórnunar- og verndarsviðs. Starfinu má sinna frá einhverri af 15 starfsstöðvum stofnunarinnar sem staðsettar eru víða um land (sjá hér: https://www.nattura.is/frettir/natturuverndarstofnun-starfsemi-og-thjonusta).
Um er að ræða tímabundið starf í 8 mánuði. Viðkomandi yrði hluti af þverfaglegu teymi á stjórnunar- og verndarsviði. Um spennandi verkefni er að ræða og tækifæri til að taka þátt í að byggja upp málaflokkinn og fyrirkomulag leyfisumsókna.
-
Afgreiðsla leyfisveitinga vegna ljósmynda og kvikmyndatöku, athafna, rannsókna og framkvæmda á friðlýstum svæðum
-
Annast svörun fyrirspurna vegna leyfismála
-
Þátttaka í stefnumótun og þróun verkferla
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
-
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
-
Gott vald á íslensku og ensku.
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Áhugi á umhverfismálum og náttúruvernd er kostur













