
Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.
Þjónustufulltrúar í Skaftafelli
Náttúruverndarstofnun leitar að jákvæðum, hjálpsömum og þjónustulunduðum einstaklingum með brennandi áhuga á náttúru og umhverfismálum til sumarstarfa í Skaftafelli. Starf þjónustufulltrúa er fjölbreytt, þar sem áhersla er lögð á að veita framúrskarandi þjónustu, miðla upplýsingum, afgreiðslu, umhirðu, ræstingar og að stuðla að jákvæðri upplifun gesta.
Einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu mikilvæga starfi eru hvattir til að sækja um og leggja sitt af mörkum til að bæta upplifun gesta og styðja við verndun náttúru Íslands.
Leitað er að einum þjónustufulltrúa sem getur hafið störf strax og þremur til fjórum til viðbótar sem geta hafið störf í ágúst og unnið fram eftir hausti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka gesta, upplýsingagjöf og þjónusta í gestastofu.
- Áfylling og framsetning vara í verslun og daglegt uppgjör tekna.
- Símsvörun og svörun tölvupósta.
- Ræsting, umhirða og viðhald á gönguleiðum, tjaldsvæði, gestastofu og áningastöðum.
- Umsjón með afgreiðslu, umhirðu og daglegri starfsemi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og sterk þjónustulund.
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun við fjölbreyttar aðstæður.
- Stundvísi, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Áhugi á náttúruvernd og umhverfismálum.
- Geta til að tileinka sér þekkingu á starfssvæðinu.
- Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur.
- Ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur.
- Fyrstu hjálpar réttindi eru kostur.
- Geta til að vinna undir álagi og í fjölbreyttu vinnuumhverfi.
Utworzono ofertę pracy23. June 2025
Termin nadsyłania podań30. June 2025
Znajomość języków

Wymagane

Wymagane
Lokalizacja
Skaftafell 1 160184, 785 Öræfi
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Podobne oferty pracy (12)

Rental Agent in Keflavík
Iceland Campers

Þjónustudeild Johan Rönning óskar eftir framtíðarstarfsfólki
Johan Rönning

Hópferðabílstjóri
Icelandia

Þjónustufulltrúi í umferðarþjónustu - Ísafjörður
Vegagerðin

Starfsmaður í þjónustuteymi Dineout
Dineout ehf.

Umsjón hjólaferða og leiðsögn - Icelandic Mountain Guides
Icelandia

Leiðsögumaður í hjólaferðum - Icelandic Mountain Guides
Icelandia

Þjónusturáðgjafi - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Þjónustufulltrúi á Stjórnstöð
Securitas

Starfsmaður á skrifstofu
Hringrás Endurvinnsla

Viðskiptastjóri í ferðaþjónustuteymi
Íslandsstofa