

Viðskiptastjóri í ferðaþjónustuteymi
Íslandsstofa auglýsir eftir viðskiptastjóra með mikinn metnað og áhuga á ferðaþjónustu og markaðssetningu Íslands. Meginmarkmið starfsins er að vinna að viðskiptaþróun og kynningarmálum í þágu íslenskrar ferðaþjónustu samkvæmt ferðamálastefnu stjórnvalda og útflutningsstefnu Íslands. Starfið felur í sér skipulagningu viðburða, byggja upp sérfræðiþekkingu á lykilmörkuðum, samskipti við hagaðila, kynningar o.fl. Um er að ræða líflegt og skemmtilegt starf í alþjóðlegu umhverfi.
Undirbúningur, skipulagning og framkvæmd viðskiptatengslaviðburða á erlendum mörkuðum
Greina tækifæri á erlendum mörkuðum í samstarfi við hagaðila
Mynda og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra mikilvæga hagaðila, innanlands og erlendis
Áætlanagerð og árangursmælingar
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Spænska og enska eru skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur
Reynsla í stjórnun verkefna/viðburða
Reynsla af að koma fram og halda kynningar
Þekking og/eða reynsla úr ferðaþjónustu
Frumkvæði og drifkraftur
Færni í efnisgerð og góð almenn tölvukunnátta
Færni til að vinna vel í teymi
Menningarlæsi, frumkvæði, samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hugmyndaauðgi














