Nortek
Nortek

Rafvirki/Rafeindavirki/Vélstjóri í Tæknideild Nortek á Akureyri.

Tækifæri fyrir metnaðarfullan rafvirkja/rafeindavirkja/vélstjóra

Nortek leitar að drífandi einstaklingi til starfa í tækniteymi fyrirtækisins við uppsetningu, þjónustu og viðhald á fjölbreyttum öryggis- og eftirlitslausnum.

Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf í skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem þú færð að vinna með nýjustu tækni, þróast faglega og leggja þitt af mörkum til að gera samfélagið öruggara. Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini og náið samstarf við samhentan hóp tæknimanna.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Býr yfir reynslu af sambærilegum störfum
  • Er lipur í mannlegum samskiptum
  • Sýnir frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hefur ríka þjónustulund og tekur ábyrgð á verkefnum

Hjá okkur færð þú tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Við bjóðum upp á reglulega fræðslu og þjálfun í nýjustu lausnum þannig að þú sért alltaf á toppnum í faginu.

Við leggjum mikla áherslu á jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gott samstarf og húmor er í hávegum haft, og tryggjum þér faglegan stuðning svo þú getir tekist á við spennandi og krefjandi verkefni.

Almennur vinnutími er frá kl. 8–16 virka daga og 8–15 á föstudögum. Starfsfólk hefur jafnframt aðgang að fyrirtækjabíl til að komast í og úr vinnu, auk búnaðar og tækja í hæsta gæðaflokki sem gera starfið bæði skilvirkt og ánægjulegt.

Umsækjendur þurfa að geta framvísað hreinu sakavottorði. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Setja upp, prófa og koma í gagnið nýjustu öryggislausnir sem bæta öryggi viðskiptavina okkar – svo sem aðgangsstýringar, innbrotakerfi, brunaviðvörunarkerfi, myndavélakerfi og slökkvikerfi.
  • Þjóna og viðhalda búnaði til að tryggja örugga og áreiðanlega virkni.
  • Gerina bilanir og leita lausna fljótt og faglega.
  • Samstarf og samvinna með öðrum sérfræðingum innan fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafeindavirkjun, rafvirkjun, vélstjórn eða sambærileg menntun
  • Sjálfstæði vinnubrögð
  • Almenn tækniþekking og áhugi, nauðsynlegt.
  • Færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Lausnamiðað hugarfar
  • Góð tölvukunnátta og færni í uppsetningu forrita
Utworzono ofertę pracy22. October 2025
Termin nadsyłania podań7. November 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Tryggvabraut 3, 600 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.ZręcznośćPathCreated with Sketch.UczciwośćPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.ElektronikaPathCreated with Sketch.ElektrykaPathCreated with Sketch.ElektrykaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.MechanikaPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe