
Matreiðslumaður/Kokkur
Matarstund sérhæfir sig í að elda heilsusamlegar og heimilislegar máltíðir fyrir börn í leik- og grunnskólum. Við leggjum áherslu á gæði, ferskt hráefni og fjölbreyttan matseðil sem gleður bæði litla og stóra. Nú leitum við að jákvæðum og metnaðarfullum matreiðslumanni/kokki til að styrkja teymið okkar.
-
Dagleg matargerð í samræmi við matseðil og gæðakröfur Matarstundar.
-
Skipulag og undirbúningur í eldhúsi, ásamt góðri nýtingu hráefna.
-
Þátttaka í uppsetningu og framþróun á uppskriftum og vinnuferlum.
-
Viðhald á hreinlæti og öryggisstöðlum samkvæmt HACCP.
-
Samstarf við annað starfsfólk eldhúss í jákvæðu og faglegu vinnuumhverfi.
-
Hefur sveinspróf í matreiðslu eða reynslu af sambærilegu starfi.
-
Er skipulagður, ábyrgur og leggur metnað í vönduð vinnubrögð.
-
Hefur áhuga á hollum og fjölbreyttum mat.
-
Nýtur þess að starfa í teymi og hefur jákvætt viðmót.
-
Fjölskylduvænn vinnutími 07:00- 15:00 (mán.–fös., frí um kvöld og helgar).
-
Hlýlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi.
-
Daglegan hádegisverð frá eldhúsi Matarstund.













