
Landhelgisgæsla Íslands
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 230 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Landhelgisgæslan óskar eftir jákvæðum launafulltrúa í fjölbreytt starf
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða jákvæðan og talnaglöggan einstakling í starf launafulltrúa á mannauðssviði. Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í lifandi og faglegu starfsumhverfi þar sem nákvæmni, samheldni og samvinna skipta máli.
Um fullt starf er að ræða og er starfsstöð viðkomandi á öryggissvæði Landhelgisgæslunnar í Keflavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Launavinnsla og frágangur launa
- Útreikningar, undirbúningur og úrvinnsla í tengslum við launavinnslu
- Umsjón með skráningu vakta, tímaskráningum og uppgjöri vinnuskýrslna í vakta- og viðverukerfi
- Ráðgjöf og upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks varðandi launa-, kjara- og réttindamál
- Önnur fjölbreytt verkefni í samráði við mannauðsstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á launavinnslu og kjaramálum er kostur
- Mjög góð almenn tölvukunnátta og góð færni í Excel
- Þekking á Orra, launakerfi ríkisins, er kostur
- Góð færni í framsetningu gagna, nákvæmni og öguð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sveigjanleiki
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Búseta á Suðurnesjum er kostur
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Utworzono ofertę pracy11. March 2026
Termin nadsyłania podań7. April 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
AngielskiWymagane
Lokalizacja
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Rodzaj pracy
Kompetencje
Pozytywne nastawieniePraca zarobkowaInterakcje międzyludzkieMicrosoft ExcelPrecyzjaOrganizacjaElastycznośćPraca zespołowaNastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe
Podobne oferty pracy (12)

Mannauðs- og launafulltrúi
Rangárþing Ytra

Innkaupafulltrúi rekstrarvöru og tækifærisgjafa hjá Pennanum
Penninn Eymundsson

Innkaupastjóri Fagkaupa
Fagkaup ehf

Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ
Alþýðusamband Íslands

Sumarstarf hjá Landi og skógi á Norðurlandi eystra
Land og skógur

Starfskraftur afgreiðslu á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

BÓKHALD - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland

Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á skrifstofu
Garðlist ehf

Sumarstarf í móttöku og bókhaldi
Colas Ísland ehf.

Bókari/uppgjörsaðili
HSE Bókhald & Uppgjör ehf.

Sumarstarf á Þjónustusviði - Farmskrárfulltrúi
Torcargo