Rangárþing Ytra
Rangárþing Ytra

Mannauðs- og launafulltrúi

Rangárþing ytra leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi starf mannauðs- og launafulltrúa.

Næsti yfirmaður er sveitarstjóri. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launavinnsla, frágangur launa og launaröðun skv. kjara- og ráðningarsamningum.
  • Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál.
  • Gerð launaáætlana.
  • Umsjón og utanumhald í tengslum við starfsmannakerfi og upplýsingar.
  • Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda varðandi mannauðsmál.
  • Leiða vinnu við jafnlaunavottun.
  • Þátttaka í stefnumótun.
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og góð þekking á launa- og kjaramálum
  • Þekking á launa- og mannauðskerfum, t.d. Dynamics 365 BC, er kostur
  • Þekking á skjalastjórnunarkerfum, t.d. One System, er kostur
  • Þekkingar skráningarkerfum sveitarfélaga, s.s. vinnustund, er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta og tæknilæsi
  • Hæfni til að greina gögn og vinna með upplýsingar
  • Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð og hæfni til að halda utan um fjölbreytt verkefni
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og metnaður til að ná árangri
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og kjarasamningum sveitarfélaga er kostur
Fríðindi í starfi

Hjá Rangárþingi ytra starfa um 170 manns hjá hinum ýmsu stofnunum en skrifstofa sveitarfélagsins er staðsett á Hellu.Nánari upplýsingar um Rangárþing ytra má finna á www.ry.is.

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; [email protected] og Telma Eiðsdóttir; [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl nk.

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Utworzono ofertę pracy17. March 2026
Termin nadsyłania podań7. April 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Suðurlandsvegur 1-3
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Praca zarobkowaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Organizacja
Zawody
Tagi zawodowe