Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd

Heilsuvernd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sitt öfluga ráðgjafateymi tengt heilsu- og vinnuverndarþjónustu. Við leitum að einstaklingum sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum en geta um leið verið hluti af sterku teymi.

Um er að ræða starfshlutfall á bilinu 75-95% þar sem unnið er á dagvinnutíma og er starfsaðstaða í Urðarhvarfi í Kópavogi.

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili.

Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Heilsufarsráðgjöf til einstaklinga
  • Heilsufarsskoðanir
  • Bólusetningar
  • Fræðsla
  • Forvarnir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
  • Þjónustulund og gott viðmót
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og ánægja af samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
Utworzono ofertę pracy5. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Rodzaj pracy
Zawody
Tagi zawodowe