Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Deildarstjóri – Sóltún Sólvangi hjúkrunarheimili

Viltu leiða frábært teymi í hlýlegu og faglegu umhverfi?

Hjúkrunarheimili Sóltúns Sólvangi í Hafnarfirði óskar eftir öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í starf deildarstjóra til að leiða starfsemi einnar deildar heimilisins.

Sólvangur er hjúkrunarheimili í hjarta Hafnarfjarðar með 71 einstaklingsíbúð. Heimilið skiptist í heimilislegar einingar með 10–11 íbúum í hverri, þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu og virðingu fyrir einstaklingnum.

Starfið skiptist í stjórnun og hjúkrun. Um er að ræða framtíðarstarf í 100% starfshlutfalli í dagvinnu innan stuðningsríks og hlýlegs umhverfis, fyrsti starfsdagur er samkvæmt samkomulagi.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Dagleg stjórnun og rekstur deildar
    • Starfsmannastjórnun og teymisvinna
    • Skipulagning og eftirfylgni með hjúkrun og umönnun
    • Samskipti við íbúa, aðstandendur og aðra fagaðila
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Íslenskt hjúkrunarleyfi
    • Hreint sakavottorð
    • Stjórnunarreynsla kostur
    • Leiðtogahæfni 
    • Góð samskipta- og skipulagshæfni
    • Frumkvæði, sveigjanleiki og jákvæðni
    • Góð íslenskukunnátta og færni í notkun upplýsingatækni
    Fríðindi í starfi
    • Niðurgreiddan hádegismat
    • Velferðartorg
    • Samgöngustyrk
    • Íþróttastyrk
    Nánari upplýsingar

     veitir Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður á tölvupóstfanginu [email protected]

    Utworzono ofertę pracy30. April 2026
    Termin nadsyłania podań10. May 2026
    Znajomość języków
    islandzkiislandzki
    Wymagane
    Doskonale
    Lokalizacja
    Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
    Rodzaj pracy
    Kompetencje
    PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.PielęgniarkaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Elastyczność
    Zawody
    Tagi zawodowe