

Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma auk þess að vera hluti af uppbyggingu slagþjónustu á Íslandi. Nýútskrifaðir áhugasamir hjúkrunarfræðingar eru sérstaklega velkomnir á deildina.
Á taugalækningadeild er mikil þverfagleg teymisvinna og fjölmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Boðið er uppá einstaklingshæfða aðlögun, undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi .
Starfshlutfall er samkomulag, unnið er í vaktavinnu og eru störfin laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
islandzki















































