Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hamraborg

Heilsugæslan Hamraborg auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni í starfsumhverfi sem er í sífelldri þróun. Á Heilsugæslunni Hamraborg ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi. Þar að auki er staðsetningin stöðvarinnar afar góð með greiðum samgöngum úr öllum áttum.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Hamraborg leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf hjúkrunarfræðinga hjá HH er fjölbreytt. Við leitum að hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að starfa við:

Opin og bókuð móttaka - Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.

Skólahjúkrun - Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi 
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur 
  • Reynsla af starfi með börnum kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð 
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu 
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur 
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki 
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta 
Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań26. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Hamraborg 8, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.PielęgniarkaPathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.ElastycznośćPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe