Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þroskaþjálfi - málastjóri - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskan

Hefur þú áhuga á að vinna í þverfaglegu teymi?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir þroskaþjálfa í starf málastjóra í Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Teymið er í stöðugri þróun, því gefast mörg tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu.

Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum, 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölbreytilegan taugaþroska og/eða sjúkdóma. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsvísu.

Ef þú hefur áhuga á vinna í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Um er að ræða 100 % tímabundið starf og ráðið er í starfið frá 15. ágúst eða eftir nánara samkomulagið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna málastjórn
  • Skipuleggur og veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf, meðferð og stuðning til notanda, aðstandenda og þjónustuveitendur
  • Þátttaka í að efla og innleiða nýjungar í starfi 
  • Hefur heildarsýn yfir skjólstæðingahópinn og vinnur þvert á teymið
  • Önnur verkefni sem starfsmanni er falin af yfirmanni

Viðkomandi mun starfa í þverfaglegum teymum í náinni samvinnu við starfsfólk heilsugæslustöðva, félagsþjónustu, geðsviðs Landspítala, annarra stofnana og samtaka.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi frá landlækni sem þroskaþjálfi
  • Hagnýt starfsreynsla a.m.k. 5 ár
  • Þekking á skipulögðum vinnubrögðum (TEACCH)
  • Góð þekking og reynsla á málaflokknum
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi á að starfa út í samfélaginu 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, félagslyndi, jákvætt viðmót og frumkvæði
  • Hæfni og áhugi á teymis-og verkefnavinnu
  • Mjög gott tölvulæsi
  • Íslensku kunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Utworzono ofertę pracy13. May 2026
Termin nadsyłania podań2. June 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.AmbicjaPathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.Organizacja
Środowisko pracy
Zawody
Tagi zawodowe