
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Framsýnn og öflugur forstöðumaður óskast í Liðsaukann
Skrifstofa málefna fatlaðs fólks leitar að framsýnum og öflugum forstöðumanni í Liðsaukann sem er færanlegt búsetuteymi og veitir stuðning á heimilum víðs vegar um Reykjavík.
Markmið Liðsaukans er að veita einstaklingum með fjölþættan vanda stuðning við sjálfstæða búsetu. Starfsemin byggir á stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, skaðaminnkun, aðferðum þjónandi leiðsagnar og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði notenda.
Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að leiða breytingar og þróa Liðsaukann í samstarfi við skrifstofu málefna fatlaðs fólks hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og fjárhagsleg ábyrgð á rekstri Liðsaukans.
- Ábyrgð á mannauðsmálum starfsstaðarins í samræmi við mannauðs- og stjórnendastefnu borgarinnar.
- Ábyrgð á faglegu starfi, framþróun og nýbreytni í þjónustu.
- Samstarf við notendur, aðstandendur og hagsmunasamtök fatlaðs fólks.
- Leiðsögn og ráðgjöf til aðstandenda og starfsfólks.
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi sem snýr að stuðningi og þjónustu við fatlað fólk.
- Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
- Reynsla af stjórnun.
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki með ólíkar þjónustuþarfir.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunar- og/eða vímuefnavanda æskileg.
- Leiðtogafærni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2-C1.
- Almenn ökuréttindi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Utworzono ofertę pracy18. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiWymagane
Lokalizacja
Borgartún 6, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
ProfesjonalnośćInicjatywaBez kryminalnej przeszłościInterakcje międzyludzkiePrawo jazdySamodzielność w pracyOrganizacjaPraca zespołowaNastawienie do klientaCierpliwość
Zawody
Tagi zawodowe
Więcej ofert pracy (5)

Ráðgjafi í málefnum fullorðins fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf stuðningsfulltrúa í Stigahlíð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Podobne oferty pracy (12)

Forstöðumaður frístundar í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Aðstoðarmanneskja óskast á Suðurlandi í helgarstarf. Seeking personal Assistants for weekends.
NPA miðstöðin

Afleysingar-aðstoðarkona í hlutastarf / Temporary Part-time Personal assistant
NPA miðstöðin

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli

Viltu vera hjálparhönd í daglegu lífi -Háskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í Vesturbæinn
NPA miðstöðin

Starfsfólk óskast í vaktavinnu hjá Hrafnkötlu
Hrafnkatla

Viðskiptastjóri - Samskip innanlands
Samskip

Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna
Reykjanesbær

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Rekstrarstjóri óskast á Bari – vinsæll vínbar og smáréttastaður í miðborginni
Bari

Hjúkrunardeildarstjóri á nýrri öryggisgeðdeild
Landspítali