Bari
Bari
Bari

Rekstrarstjóri óskast á Bari – vinsæll vínbar og smáréttastaður í miðborginni

Við erum að leita að öflugum og metnaðarfullum rekstrarstjóra til liðs við okkur. Bari er líflegur vínbar og veitingastaður sem byggir á vönduðum smáréttum, góðri stemningu og framúrskarandi þjónustu.

Við leitum að einstaklingi sem hefur sterka reynslu úr þjónustu og rekstri veitingastaða, brennur fyrir gestrisni og hefur getu til að leiða teymi í hraðskreiðu umhverfi. Starfið hentar einstaklingi sem er lausnamiðaður, skipulagður og nær að halda háum gæðum í þjónustu jafnvel á annasömum kvöldum.

Mikil áhersla er lögð á fagmennsku, þjónustulund, samskipti og auga fyrir upplifun gesta. Þekking og áhugi á vínum og veitingastöðum er stór kostur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegur rekstur salar og þjónustu
  • Umsjón með starfsfólki, vaktaplönum og þjónustuflæði
  • Tryggja framúrskarandi upplifun gesta
  • Þjálfun og hvatning starfsfólks
  • Samvinna við eldhús og eigendur um daglegan rekstur
  • Eftirlit með gæðum, skipulagi og stemningu staðarins
  • Umsjón með vínþjónustu og framsetningu í sal
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af rekstri eða stjórnun á veitingastað
  • Sterk reynsla úr þjónustu (FOH reynsla er krafa)
  • Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
  • Góð þekking og áhugi á vínum er mikill kostur
  • Hæfni til að leiða teymi og vinna undir álagi
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á rekstur og upplifun staðarins
  • Vinna með metnaðarfullu og öflugu teymi
  • Lifandi og skemmtilegt vinnuumhverfi í miðbæ Reykjavíkur
  • Tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
  • Samkeppnishæf kjör fyrir réttan aðila
Utworzono ofertę pracy16. May 2026
Termin nadsyłania podań31. May 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
AngielskiAngielski
Wymagane
Kompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Obsługa baruPathCreated with Sketch.ProfesjonalnośćPathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.SumiennośćPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowaPathCreated with Sketch.praca pod presjąPathCreated with Sketch.Nastawienie do klienta
Zawody
Tagi zawodowe