

Grunnskólakennari - Grunnskólinn í Borgarnesi
Viltu taka þátt í framsæknu skólastarfi með frábærum hópi starfsmanna, nemenda og foreldra, þá er Grunnskólinn í Borgarnesi að leita að umsjónarkennara á yngsta stigi fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með um 330 nemendur og 60 starfsmenn. Við skólann starfar samheldinn og framsækinn starfsmannahópur. Skólinn vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar þar sem áhersla er lögð á velferð nemenda. Skólinn er teymiskennsluskóli og er í innleiðingarferli á leiðsagnarnámi.
Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.
- Skipulag náms og kennsla nemenda
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðla að velferð og öryggi nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Teymisvinna
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Áhugi á starfi með börnum
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi
- Jákvæðni og faglegur metnaður
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
- Afsláttur hjá Símanum
- Afsláttur á bókasafninu












