Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Frístundaleiðbeinendur óskast á frístundaheimili Tjarnarinnar

Frístundamiðstöðin Tjörnin leitar að áhugasömu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilum sínum í vetur. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í 50% starfi eftir hádegi. Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki. Frístundamiðstöðin Tjörnin starfrækir frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Eldflaugina við Hlíðaskóla, Frostheima, safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Vesturbæ, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla en leitað er eftir fólki á alla þessa staði. Umsækjendur geta tekið fram í umsókn hvort einn staður henti betur en annar. Frístundamiðstöðin Tjörnin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Helstu verkefni og ábyrgð
  • * Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • * Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • * Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • * Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfniskröfur
  • * Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • * Áhugi á að vinna með börnum.
  • * Frumkvæði og sjálfstæði.
  • * Færni í samskiptum.
  • *Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Utworzono ofertę pracy8. July 2025
Termin nadsyłania podań4. August 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Podstawowe umiejętności
Lokalizacja
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Praca zespołowa
Odpowiada
Zawody
Oznaczenia