

Djúpavogsskóli; 50% staða heimilisfræðikennara
- Laus er til umsóknar 50% staða heimilisfræðikennara frá og með 1. ágúst 2025.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með innan við 100 nemendur, þar sem er áhersla á jákvæðan skólabrag, góða teymisvinnu og -kennslu og fjölbreytta kennsluhætti.
Skólinn vinnur eftir stefnum skólans, m.a. í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á uppbyggilega skólaþróun og velferð nemenda og starfsfólks. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á t.d. úti- og grenndarnám, fjölbreytta kennsluhætti, Leiðsagnarnám, Heilsueflandi skóla, Uppeldi til ábyrðgar, Byrjendalæsi, samþættingu, núvitund og andlegt heilbrigði og sjálfbærni. Lögð er rík áhersla á teymisvinnu og teymiskennslu.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum sem eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Heimilisfræðikennari:
- Annast kennslu í heimilisfræði, 50% stöðu.
- Annast kennslu nemenda samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámsskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda i samráði við samkennara og skólastjórnendur.
- Að annast umsjón með nemendahópi.
- Að taka virkan þátt í teymiskennslu, teymisvinnu og mótun og þróun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.
Kennarar:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
- Góð tök á íslensku í töluðu og rituðu máli.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi
- Áhugi að taka þátt í teymistarfi og þróun náms- og kennsluhátta.












