

Frístund: Frístundarleiðbeinandi
Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða frístundarleiðbeinanda í u.þ.b. 45% starfshlutfall í frístund og sumarfrístund (starfshlutfall eykst á opnunartíma sumarfrístundar), en um framtíðarstarf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun janúar 2026.
Upplýsingar um starfið
Meginmarkmið starfsins er að bjóða upp á innihaldsríkt og þroskandi frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi barna lýkur. Markmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf frístundar. Starfsfólk frístundar leitast við að mæta börnum eftir þeirra þörfum, til að efla sjálfstraust, sjálfsstæði og félagsfærni þeirra.
· Leiðbeina og styðja börn í leik og starfi.
· Skipuleggja faglegt starf og leiða fjölbreyttar og skapandi frístundastundir fyrir börn.
· Tryggja öryggi og vellíðan þátttakenda í öllu starfi.
· Stuðla að samstarfi við foreldra, skóla og aðra samstarfsaðila innan sveitarfélagsins.
· Fylgja stefnu Dalvíkurbyggðar í frístundamálum og leggja sitt af mörkum til þróunar starfsins.
· Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
· Áhugi að vinna með börnum.
· Góð hæfni í samskiptum, samvinnu og leiðsögn hópa.
· Frumkvæði, ábyrgðartilfinning og skipulagshæfni.
· Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni.
· Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
· Hreint sakavottorð samkvæmt lögum.
islandzki










