Deildarstjóri göngudeildar svefntengdra sjúkdóma
Nýtt starf deildarstjóra á sameinaðri göngudeild svefntengdra sjúkdóma er laust til umsóknar.
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi göngudeildar svefntengdra sjúkdóma á Landspítala og byggja upp sterka liðsheild. Deildarstjóri göngudeildar svefntengdra sjúkdóma þarf að hafa faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun og teymisvinnu. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfni. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við yfirlækni svefndeildar, forstöðuhjúkrunarfræðing ferliþjónustu bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu, aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Göngudeildin heyrir til ferliþjónustu bráða-, lyflækninga- og endurhæfingar. Á deildinni starfa um 20 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, svefnmælifræðingar, starfsfólk með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt öflugri ritaraþjónustu. Hópurinn starfar saman að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði svefnrannsókna og meðferðar. Svefnraskanir eru algengar og eru mikil byrði fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild. Svefndeild Landspítala gegnir lykilhlutverki við greiningu og meðferð svefnraskana og tengdra sjúkdóma og eru nú um 12.000 einstaklingar í eftirliti á deildinni.
Klíníska starfsemin er þríþætt:
- Göngudeildarþjónusta
- Sérhæfð rannsóknareining sem framkvæmir svefnrannsóknir í heimahúsi, á svefnrannsóknarstofu Landspítala og á öðrum heilbrigðisstofnunum
- Úthlutun, innstilling og eftirlit með svefntækjum og ytri öndunarvélun í gegnum samning við sjúkratryggingar Íslands.
Deildarstjóri sinnir daglegri stjórnun og er leiðtogi með þríþætta ábyrgð, þ.e. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur ferliþjónustu á bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. nóvember 2024 eða eftir samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð, þ.e. á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði og áætlanagerð deildarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni og forstöðufólk bráða-, lyf- og endurhæfingarþjónustu
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi bráða-, lyf- og endurhæfingarþjónustu
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi
- Klínísk reynsla sem nýtist í starfi
- Framúrskarandi skipulagshæfileikar og geta til að halda utan um og stýra flókinni og vaxandi starfsemi sem hefur marga snertifleti í heilbrigðiskerfinu (heilsugæsla, fjórðungssjúkrahús, einkastofur, embætti Landlæknis, sjúkratryggingar og heilbrigðisráðuneytið).
- Færni og farsæl reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð er kostur
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli