Skrifstofumaður á lager á skurðstofum
Ertu skipulagður og með góða tölvukunnáttu?
Við óskum eftir skrifstofumanni á lager á skurðstofum Landspítala við Hringbraut, þar starfar 3 manna teymi við umsjón með skurðstofulager. Við leitum að starfsmanni sem hefur gaman að skipuleggja, hefur mjög góða tölvukunnáttu og á gott með að vinna með gögn.
Unnið er í dagvinnu, frá kl. 07:30-15:30 og er starfið er laust eftir samkomulagi. Starfshlutfall er 100%.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir. Þar starfa um 90 einstaklingar; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi og er starf sérhæfðs starfsmanns mikilvægur hlekkur í góðri þjónustu við sjúklinga.