Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Rauði krossinn í Reykjavík var stofnaður 27. apríl, 1950 og er stærsta deild Rauða krossins á Íslandi, með um átta þúsund félaga, eða um 40 prósent af heildinni. Allir félagar sem hafa greitt árgjaldið fyrir lok undangengins árs hafa atkvæðarétt og kjörgengi á aðalfundi, sem er að jafnaði haldinn í mars á hverju ári. Rúmlega 20 starfsmenn og 750 sjálfboðaliðar sinna verkefnum deildarinnar.
Verkefnafulltrúi í Ylju, neyslurými Rauða krossins
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða öfluga manneskju í 80 -100 % starf verkefnafulltrúa í nýju skaðaminnkunarverkefni, neyslurýminu Ylju. Um er að ræða krefjandi en skemmtilegt starf, tímabundið í 6 mánuði með möguleikum á áframhaldandi ráðningu.
Aðalmarkmið skaðaminnkunarverkefna Rauða krossins er að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll, koma í veg fyrir óafturkræfan skaða og auka lífsgæði og heilsufar fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegu skipulagi og forgangsröðun verkefna.
- Skipulag vakta, leyfa og mönnunar ásamt teymisstjóra.
- Utanumhald með tölulegum upplýsingum og mælikvörðum er varða verkefnið.
- Miðla þekkingu til nýrra starfsmanna og sjá um nýliðaþjálfun ásamt hjúkrunarfræðingi.
- Kynningar, fræðsla og áætlunargerð vegna verkefnis.
- Önnur tilfallandi verkefni sem og þátttaka og stuðningur við annað starf Rauða krossins og deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. félagsvísindi, félagsráðgjöf eða á sviði geðheilbrigðis.
- Reynsla og þekking á skaðaminnkun er kostur.
- Góð hæfni til að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi skilyrði.
- Jákvæðni, frumkvæðni, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Framúrskarandi hæfni í skipulagningu og verkefnastjórnun.
- Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál kostur.
Fríðindi í starfi
- Hreyfimínútur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Farsímastyrkur
Utworzono ofertę pracy30. September 2024
Termin nadsyłania podań14. October 2024
Znajomość języków
islandzkiDoskonale
AngielskiKompetencje na wysokim poziomie
Lokalizacja
Borgartún 5, 105 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia
Podobne oferty pracy (12)
Aðstoðarmaður deildarstjóra / verkefnastjóri á útskriftardeild aldraðra
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Sólvangi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Félagsráðgjafi í deild virkni og ráðgjafar á Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Hjúkrunardeildarstjóri á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi
Landspítali
Ert þú efni í góðan neyðarvörð?
Neyðarlínan
Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efra-Breiðholti
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Menntasvið leitar að leiðtoga frístundadeildar
Kópavogsbær
Sóltún - Hjúkrunarfræðingur
Sóltún hjúkrunarheimili
Hjúkrunarfræðingur - Hlévangur Reykjanesbær
Hrafnista
Sölumaður fyrirtækjaþjónustu
Garðheimar