Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Félagsráðgjafi í deild virkni og ráðgjafar á Norðurmiðstöð

Norðurmiðstöð óskar eftir öflugum félagsráðgjafa til starfa í deild virkni og ráðgjafar. Starfið krefst þekkingar á almennri félags- og velferðarþjónustu og hæfni í mannlegum samskiptum. Starfið er fjölbreytt og snýr að þjónustu við borgarbúa sem unnin er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu með metnaðarfullu starfsfólki.

Um er að ræða tímabundna ráðningu til 15. október 2025 og er kostur ef viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Norðurmiðstöð býður upp á fjölskylduvænan vinnustað með sveigjanlegum vinnutíma þar sem innleidd hefur verið styttingu vinnuviku.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita félagslega ráðgjöf til einstaklinga m.a. vegna félagslegra aðstæðna, óvinnufærni, atvinnuleysis, virkni, vímuefnamála og fjölmenningar.
  • Greining á þjónustuþörf og ráðgjöf m.a. varðandi fjárhagsaðstoð, húsnæðismál og þeirrar þjónustu og stuðningsúrræða sem eru í boði bæði hjá Reykjavíkurborg og hjá öðrum.
  • Sinna verkefnum sem taka til almennrar félags- og velferðarþjónustu auk þróunar á þjónustu.
  • Taka þátt í þverfaglegu samstarfi innan og utan Norðurmiðstöðvar.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf
  • Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála með einstaklinga æskileg.
  • Þekking og reynsla af sviði velferðarþjónustu.
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
  • Áhugi á teymisvinnu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Góð íslenskukunnátta (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta æskileg.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Möguleiki á samgöngustyrk
  • Mötuneyti
  • Stytting vinnuviku
Utworzono ofertę pracy1. October 2024
Termin nadsyłania podań15. October 2024
Znajomość języków
islandzkiislandzkiDoskonale
Lokalizacja
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia