Verksýn
Verksýn

Byggingatæknifræðingur

Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf byggingartæknifræðings til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta
  • Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum
  • Gerð útboðs- og verklýsinga
  • Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag
  • Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit
  • Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði byggingartæknifræði
  • Aðilar með skylda menntun, s.s. byggingafræði, iðnfræði, arkitektúr, verkfræði eða reynslumiklir iðnmeistarar koma einnig til greina.
  • Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur. Einnig er kostur ef umsækjendur hafa lokið iðnmenntun.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Verksýn:
Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá veitt sérhæfða ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið vinnur einnig að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir.
Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.

Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðverkarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.

Utworzono ofertę pracy16. September 2026
Termin nadsyłania podań1. October 2026
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Síðumúli 1, 108 Reykjavík
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Inżynier budownictwaPathCreated with Sketch.PrzemysłowiecPathCreated with Sketch.Pozytywne nastawieniePathCreated with Sketch.Interakcje międzyludzkiePathCreated with Sketch.Samodzielność w pracyPathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.Zarządzanie projektem
Zawody
Tagi zawodowe