Byko
Byko
Byko

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Akureyri

BYKO Akureyri auglýsir eftir aðstoðarverslunarstjóra. Leitum að öflugum, hressum og duglegum leiðtoga til að aðstoða okkur við að stýra þeim frábæra hópi fólks sem vinnur í BYKO Akureyri.

Um fullt starf er að ræða.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Reynslu af stjórnunar-eða leiðtogastarfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Getu til að vinna undir álagi og taka ákvarðanir
  • Góða skipulagshæfni
  • Góða íslensku- og enskukunnáttu, í ræðu og riti

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og fagleg vinnubrögð starfsfólks
  • Ábyrgð á mönnun verslunar og utanumhaldi með fjarveru í samstarfi við aðra stjórnendur
  • Sér til þess að starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og þjálfun
  • Ráðningar og önnur mannauðstengd verkefni í samstarfi við verslunarstjóra
  • Miðlar upplýsingum um rekstur verslunar til starfsfólks
  • Ber ábyrgð á vöruframsetningu, verðmerkingum og verðbreytingum
  • Tekur á móti og vinnur úr kvörtunum viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Umsóknarfrestur er til og með 10.sept en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Egill Snær Þorsteinsson, ([email protected]) verslunarstjóri.

Utworzono ofertę pracy2. September 2025
Termin nadsyłania podań10. September 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.Zdolności kierowniczePathCreated with Sketch.OrganizacjaPathCreated with Sketch.SprzedażPathCreated with Sketch.Dział kadrPathCreated with Sketch.Prezentacja produktu
Zawody
Tagi zawodowe