

Aðstoðarfólk á bráðamóttöku Fossvogi
Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi vill ráða til starfa öflugt aðstoðarfólk. Deildin er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þangað koma allir sjúklingahópar Landspítala og er því starfið fjölbreytt og engir dagar eins. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er náið með öllum starfsstéttum. Á deildinni ríkir sérstaklega góður starfsandi.
Við leitum eftir metnaðarfullu liðsfólki sem er sjálfstætt í starfi, með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni. Um er að ræða vaktavinnu, 80-100% starfshlutfall. Upphaf starfa er samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Nýtt starfsfólk fær góðan aðlögunartíma undir handleiðslu reynds starfsfólks.
Vinnuvika starfsfólks í vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.






















































