Vogaskóli
Vogaskóli

Vogaskóli - kennari í sérdeild

Vogaskóli auglýsir eftir kennara í sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi kennara sem er tilbúinn til að sinna kennslu í sérdeild fyrir einhverfa nemendur.
Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með um 410 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla og umsjón nemenda í sérdeild fyrir einhverfa.
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við aðra starfsmenn skólans.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við fagfólk og foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Menntun og hæfni til að kenna nemendum í sérdeild fyrir einhverfa
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
  • Sveigjanleiki og góð hæfni í samskiptum
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published18. February 2026
Application deadline4. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skeiðarvogur 1, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags