Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf í leikskólanum Núp

Núpur óskar eftir leikglöðum leiðbeinanda.

Leikskólinn er 5 deilda leikskóli sem staðsettur er í Núpalind 3. Einkunnarorð Núps eru sjálfstæði og sköpun í samvinnu og gleði. Við leggjum áherslu á fjölgreindir í leikskólastarfi og að hin siðferðislegu gildi samfélagsins endurspeglist í öllu leikskólastarfinu s.s. virðing fyrir einstaklingnum, samábyrgð, umhyggja, sáttfýsi og tjáningarfrelsi allra.

Fjölgreindir í leikskólastarfi hjálpa okkur að sjá hvernig hvert barn lærir best og hvað við getum gert til að auðvelda því að nýta allar greindir til náms. Í leikskólanum eru börn með mismunandi atgervi og frá ólíkum menningarheimum og leitast er við að hvert barn fái viðfangsefni við sitt hæfi.

Upplýsingar um leikskólann má finna á http://nupur.kopavogur.is/

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Alfeysingarverkefni
  • Þátttaka í leik og starfi
  • Vinna á deildum með börnum frá 2 ára aldri
  • Vinna í eldhúsi og önnur tilfallandi störf undir stjórn leikskólastjóra og deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Skapandi hugsun og metnaður í starfi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Advertisement published15. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Núpalind 3, 201 Kópavogur
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags