Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Menntasvið - Leikskólafulltrúi

Skrifstofa menntasviðs Reykjanesbæjar óskar eftir öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við hóp metnaðarfullra sérfræðinga skólaþjónustu. Við störfum í árangursríku og þverfaglegu menntasamfélagi og bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og sveigjanlegt starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á teymisvinnu, fagmennsku og farsæld ásamt tækifærum til starfsþróunar.

Hjá okkur ríkir menning sem hvetur og viðheldur stöðugri endurnýjun og framþróun meðal allra þeirra sem koma að menntun og uppeldi í þeim sameiginlega tilgangi að styrkja og efla börn og ungmenni. Í skólaþjónustu Reykjanesbæjar starfar samhentur hópur fagfólks sem hefur það að leiðarljósi að veita þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra með opnum hug og gleði í hjarta. Þjónustan tekur mið af menntastefnu sveitarfélagsins þar sem leiðarljósin eru börnin mikilvægust, kraftur fjölbreytileikans og faglegt menntasamfélag.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta, ráðgjöf og eftirlit með leikskólastarfi og daggæslu samkvæmt lögum og reglum.
  • Innleiðing og eftirfylgni með stefnu sveitarfélagsins í leikskólamálum.
  • Stefnumótun og þróun leikskólastarfs í samstarfi við stjórnendur og aðra hagaðila.
  • Umsjón með mati á skólastarfi, skýrslugerð og gæðastjórnun.
  • Skipulag og efling sí- og endurmenntunar og starfsþróunar.
  • Samstarf og samhæfing við sérfræðiþjónustu, stofnanir og foreldrasamfélag.
  • Yfirumsjón með innritun, biðlistum og áætlanagerð um leikskólarými.
  • Umsjón og eftirlit með daggæslu barna í heimahúsum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið leikskólakennari.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og menntamála æskileg.
  • Reynsla og þekking af stjórnun og starfi leikskóla
  • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
  • Þekking og færni í áætlanagerð.
  • Þekking og reynsla af leikskólakerfinu Völu.
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði í starfi. 
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar.
  • Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun.
  • Þekking og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published13. February 2026
Application deadline26. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.Financial planningPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags