
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon er nýlegur baðstaður og veitingastaður í hjarta Suðurlands, við hina glæsilegu Iðubrú sem liggur yfir Hvítá við byggðina í Laugarási. Baðstaðurinn er hannaður þannig að hann fellur á fullkominn hátt inn í landslagið og veitir gestum einstaka upplifun með baðlóni á tveimur hæðum. Á útisvæði eru tvær sánur, útisturtur, kaldur pottur og heitur pottur í skógarrjóðri, sem býður upp á einstaka upplifun kyrrðar og náttúru.
Mikilvægur þáttur í töfrum Laugarás Lagoon er veitingastaðurinn Ylja þar sem matreiðslumaðurinn Gísli Matt fer fyrir. Ylja býður upp á fjölbreyttan, heilnæman mat úr afurðum frá bændum í nágrenni staðarins, þá ekki síst hið ljúffenga grænmeti sem svæðið er þekkt fyrir.
Laugarás Lagoon is a new bathing destination in the heart of South Iceland, located by the magnificent bridge that spans the Hvítá River near the settlement of Laugarás. The lagoon is designed to blend seamlessly with the surrounding landscape, offering guests a unique experience with a two-level bathing area and an exceptional outdoor space.
An important part of the charm of Laugarás Lagoon is the Ylja restaurant, led by chef Gísli Matthías Auðunsson. Ylja offers a diverse and wholesome menu featuring local produce from nearby farms, with particular emphasis on the delicious vegetables for which the region is renowned.

Vaktstjóri þjónustu og upplifunar /Guest Experience Manager
(English below) Við leitum að drífandi, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi í hlutverk vaktstjóra þjónustu og upplifunar í nýju og einstökum áfangastsað sem opnar í Laugarási á næstu misserum – þar sem náttúra, vellíðan og dýrmæt upplifun mætast á einum stað.
Í þessari fjölbreyttu og mikilvægu stöðu leiðir þú daglegt þjónustuflæði bæði í baðlóni og á veitingastaðnum Ylju, sem staðsettur er við baðsvæðið. Þú berð ábyrgð á því að gestir upplifi hlýju, fagmennsku og samfellda þjónustu – hvort sem þeir eru á á baðsvæðinu eða njóta góðrar máltíðar.
Sem vaktstjóri tekur þú virkan þátt í að móta stemningu, þjónustustefnu og teymið sem mun skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti okkar. Unnið er í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta og viðhalda einstakri gestaupplifun með hlýlegri og faglegri þjónustu
- Leiða og styðja starfsfólk í daglegum verkefnum og tryggja gott flæði í þjónustu
- Veita gestum skýrar og vingjarnlegar upplýsingar um reglur, aðstöðu og upplifanir sem í boði eru
- Hafa yfirsýn yfir veitingasvæðið og tryggja að þjónusta í Ylju sé vönduð og hlýleg
- Bregðast við aðstæðum sem krefjast útsjónarsemi og lausnamiðaðrar hugsunar
- Koma með hugmyndir að nýjungum og leiðum til að bæta upplifun gesta og þróa þjónustuna áfram
- Taka virkan þátt í þjálfun nýrra starfsmanna og umbótastarfi í samstarfi við stjórnendur
- Vera jákvæð og hvetjandi fyrirmynd í samskiptum og stuðla að samheldni, samvinnu og góðum starfsanda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði ferðaþjónustu, hótel- og gestaþjónustu, viðskipta, heilsu eða öðru sem nýtist í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum, helst í forystuhlutverki
- Þekking á öryggismálum tengdum baðstöðum eða heilsuböðum er kostur
- Almenn tölvukunnátta og reynsla af bókunar- og þjónustukerfum
- Góð færni í íslensku og ensku – önnur tungumálakunnátta er kostur
- Frábær samskiptahæfni – bæði gagnvart gestum og samstarfsfólki
- Færni í að miðla upplýsingum á skýran, hlýlegan og faglegan hátt
- Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður með yfirvegun og þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
- Við getum boðið upp á húsnæði í nálægð við vinnustaðinn.
- Tækifæri til starfsþróunar
- Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
- Aðgang að þjónustu fyrirtækisins
Advertisement published16. April 2025
Application deadline9. May 2025
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Skálholtsvegi 1, Laugarási
Type of work
Skills
Clean criminal record
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Shift manager for the front desk
KúKú Campers Ehf.

Rental Service Agent - Keflavík
Indie Campers

Sölumanneskja í 20% í veitingageiranum
Borg99

Hotel Receptionist – 201 Hotel (Day Shifts)
201 Hotel

Ráðgjafi í tækni- og notendaþjónustu
Garnes Data

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Client Experience Specialist
Nordic Luxury

Verkefnastjóri í skipateymi Atlantik
Atlantik

Þjónar á BRASA veitinga- og viðburðarstaður (Hlutstarf)
Brasa

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland