Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Vilt þú vinna á stað þar sem fagmennska, sveigjanleiki og gott starfsumhverfi eru í fyrirrúmi?

Heilbrigðisstofnun Norðurlands leitar að geðlækni í geðheilsuteymi fullorðinna

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir til umsóknar lausa stöðu sérfræðings í geðlækningum í geðheilsuteymi fullorðinna. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfsstöðvum HSN sem eru Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Um ótímabundið starf er að ræða og starfshlutfall að lágmarki 20% eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu á HSN.

Starfið felur í sér þátttöku í geðheilsuteymi fullorðinna. Geðheilsuteymi HSN er þverfaglegt endurhæfingar- og meðferðarteymi fyrir einstaklinga 18 ára og eldri og er ríkt af mannauð en í dag starfa þar geðlæknir, læknir, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi/fjölskylduráðgjafi og heilbrigðisgagnafræðingur. Rík áhersla er lög á vellíðan á vinnustað, samþættingu vinnu og einkalífs, símenntun, öryggi, gæði og fagmennsku.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands sinnir heilsugæsluþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 750 talsins.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir þá sem vilja koma að uppbyggingu og þróun á meðferðarstarfi fyrir fullorðna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í uppbyggingu á geðþjónustu við fullorðna á Norðurlandi 
  • Viðtöl og mat skjólstæðinga 
  • Greining og meðferð algengustu geðraskana hjá fullorðnum 
  • Ráðgjöf, lyfjastillingar og eftirfylgd
  • Þátttaka í faglegu samstarfi í teymisvinnu 
  • Samvinna við aðrar fagstéttir 
  • Ráðgjöf varðandi geðræn vandamál fullorðna fyrir lækna á starfsstöðvum HSN 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi skilyrði 
  • Fullgild réttindi í geðlækningum skilyrði 
  • Greinagóð þekking á algengustu geðröskunum fullorðna 
  • Reynsla af greiningum og meðferðum á geðröskun fullorðna 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum   
  • Áhugi á teymisvinnu
  • Fagmennska og jákvæðni
  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Faglegur metnaður, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Áhugi á samstarfi við aðrar starfsstéttir
  • Góð almenn íslenskukunnátta og tölvunotkun 
  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi
Advertisement published4. December 2025
Application deadline2. January 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Akureyri
Blönduós
Sauðárkrókur
Húsavík
Fjallabyggð
Dalvík , 620 Dalvík
Type of work
Professions
Job Tags