Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Innheimtufulltrúi - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða innheimtufulltrúa í 80% til 100% starf. Viðkomandi starfar þvert á stofnunina og er hægt að sinna starfinu frá hvaða megin starfsstöð HSN sem er. Næsti yfirmaður er forstöðumaður bókhalds, innheimtu og greininga.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands sinnir heilsugæsluþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 750 talsins.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með reikningagerð, afstemmingum og innheimtu stofnunninnar 
  • Yfirumsjón með tekjuberandi samningum og eftirfylgni með þeim 
  • Upplýsingagjöf og þjónusta til innri og ytri viðskiptavina vegna innheimtumála 
  • Samskipti við innheimtufyrirtæki 
  • Rekstrargreiningarvinna með forstöðumanni 
  • Virk þátttaka í umbótaverkefnum og þróun ferla 
  • Önnur tilfallandi verkefni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi* 
  • Reynsla af innheimtustörfum kostur 
  • Góð greiningarhæfni og talnaskilningur 
  • Nákvæmni og öguð vinnubrögð 
  • Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum
  • Þekking á bókhaldskerfi ríkisins (Oracle) og/eða tekjubókhaldi ríkisins (TBR) kostur  
  • Framþróun og faglegur metnaður 
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund 
  • Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor 

*Til greina kemur að ráða öflugan einstakling með umfangsmikla reynslu og þekkingu af sambærulegu starfi. 

Advertisement published25. November 2025
Application deadline5. December 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Blönduós
Húsavík
Dalvík
Siglufjörður
Sauðárkrókur
Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags