Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?

Við leitum að öflugum, framsýnum og skipulögðum leiðtoga. Auglýst er eftir deildarstjóra skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar, sem jafnframt gegnir hlutverki skipulagsfulltrúa.

Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu og mótun sjálfbæra og blómlega framtíð samfélagsins á einstökum stað. Ertu tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og leiða mikilvæga þróun?

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa, byggingarfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
  • Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags í samræmi við sýn sveitarfélagsins.
  • Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, útgáfa framkvæmdaleyfa og túlkun skipulagsskilmála.
  • Umsjón með landupplýsingakerfum, kortagrunnum og úthlutun lóða, ásamt utanumhaldi landeigna.
  • Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og eftirlit með skipulagsmálum aðliggjandi sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
  • Reynsla af skipulagsmálum er nauðsynleg. Reynsla af opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er stór kostur.
  • Jákvæðni, lipurð í samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
  • Drifkraftur, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í íslensku.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni sem tengist starfssviðinu.

Við hvetjum einnig einstaklinga sem uppfylla ekki hæfisskilyrði skipulagslaga, en uppfylla önnur skilyrði, til að sækja um. Í þeim tilfellum kemur til greina tímabundin ráðning á grundvelli undanþágu ráðherra skv. 6.mgr. 7.gr. skipulagslaga.

Advertisement published15. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags