Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Umhverfis- og framkvæmdasvið – Forstöðumaður umhverfismiðstöðvar

Umhverfis- og framkvæmdasvið Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi forstöðumann Umhverfismiðstöðvar.

Leitað er að leiðtoga með brennandi áhuga á umhverfismálum sveitarfélagsins og sterka faglega sýn. Viðkomandi þarf að búa yfir iðnmenntun og víðtækri starfsreynslu sem nýtist í starfi. Mikilvægt er að umsækjandi sé lausnamiðaður, skipulagður og jákvæður, með góða greiningarhæfni og frumkvæði. Starfið krefst þess að geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi, auk þess að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Forstöðumaður ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri og daglegri stjórnun Umhverfismiðstöðvar og starfar í nánu samstarfi við deildarstjóra umhverfismála.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á stefnumótun, rekstri og stjórnun.
  • Eftirlit með þjónustu, gæðum og árangri starfseminnar, ásamt eftirfylgni og umbótum.
  • Ábyrgð á mannauðs- og ráðningaferlum.
  • Umsjón með rekstri og viðhaldi gatna, gangstétta og stíga.
  • Umsjón með snjómokstri og hálkuvörnum.
  • Umsjón með úrgangsmálum, m.a. sorphreinsun, grenndarstöðvum og efnislosun.
  • Umsjón með verklegum framkvæmdum tengdum hátíðarhöldum.
  • Umsjón með sameiginlegum mannvirkjum Umhverfismiðstöðvar og fráveitu.
  • Eftirlit með verktökum og samningum.
  • Samskipti og ráðgjöf til bæjarbúa, stofnana, eftirlitsaðila, verktaka og annarra hagaðila.
  • Undirbúningur fjárhagsáætlunar í samráði við deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun ásamt umfangsmikilli starfsreynslu eða meistararéttindum.
  • Reynsla af starfi eða stjórnun á sambærilegu sviði æskileg.
  • Reynsla af stjórnsýslu sveitarfélaga er æskileg.
  • Reynsla af fjárhags- og skjalakerfum er kostur.
  • Framúrskarandi leiðtoga- og stjórnunarhæfni.
  • Mjög góð samskiptahæfni.
  • Jákvæðni, góð framkoma og fagmennska í samskiptum.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja tækni.
  • Almenn ökuréttindi; aukin ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur.
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published11. May 2026
Application deadline25. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Grænásbraut 910, 235 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Meticulousness
Professions
Job Tags