
Menntasjóður námsmanna
Menntasjóður námsmanna er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá Menntasjóði námsmanna starfa um 40 starfsmenn.
Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni.
Fjármálastjóri
Menntasjóður námsmanna (MSNM) óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan fjármálastjóra til að leiða og þróa fjármálastarfsemi sjóðsins. Um er að ræða ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf þar sem reynir á greiningarhæfni, yfirsýn, frumkvæði og góða samskiptahæfni.
Fjármálastjóri gegnir lykilhlutverki í daglegri stjórnun fjármála sjóðsins og vinnur náið með framkvæmdastjóra, stjórnendum og opinberum aðilum að áætlanagerð, upplýsingagjöf og áframhaldandi þróun fjármálastýringar sjóðsins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á daglegri fjármálastýringu sjóðsins
- Umsjón með gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana og sjóðstreymisáætlana
- Umsjón með bókhaldi og gerð ársreikninga
- Eftirlit með rekstri, greiningum og eftirfylgni með fjárhagslegum markmiðum
- Umsjón með útlánastýringu, innheimtu og endurheimtum í samstarfi við aðra stjórnendur
- Gerð kostnaðargreininga, tölfræðivinnslu og fjárhagslegra greininga fyrir stjórnendur, stjórn og ráðuneyti
- Ábyrgð á launavinnslu og tengdum verkefnum
- Þróun og umbætur á verkferlum, verklýsingum og ferlum innan fjármála og bókhalds
- Samskipti við ráðuneyti, Seðlabanka Íslands, Fjársýsluna, viðskiptabanka og aðra samstarfsaðila
- Ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks varðandi fjárhagsleg málefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskiptafræði, hagfræði, reikningsskila eða endurskoðunar
- Reynsla af bókhaldi, fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörsvinnu
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
- Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu upplýsinga og gagna
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs
- Framsýni, metnaður og drifkraftur
- Góð tölvukunnátta. Þekking á Orra, fjárhagskerfi ríkisins, er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Advertisement published8. May 2026
Application deadline25. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Financial statementsFinancial planningPlanningProactiveLeadershipHuman relationsOracleIndependencePlanningWrite up
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Bókari
Menntasjóður námsmanna

Sérfræðingur í lánaumsýslu
Arion banki

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Sérfræðingur í reikningshaldi, uppgjöri og sjálfbærniupplýsingagjöf
Borealis Data Center ehf.

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Arion banki

Framkvæmdastjóri fjármála hjá Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Framkvæmdastjóri
Síld og fiskur ehf - Ali

Verkefnastjóri í fjármálatengdum verkefnum
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands

Cost Controller - CAPEX Projects
Borealis Data Center ehf.

Bókari
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Bókari
Veritas

Sérfræðingur í gæðastjórnun
Íslandsbanki