Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sérfræðingur í lánaumsýslu

Við leitum að reynslumiklum aðila í starf sérfræðings í lánaumsýslu á skrifstofu bankastjóra. Viðkomandi mun starfa með útlánastjóra (CCO) og koma að fjölmörgum þáttum við mótun, framkvæmd og þróun útlánaferils bankans. Um er að ræða krefjandi og skemmtilegt starf fyrir áhugasaman aðila með sterka greiningarhæfni, góða yfirsýn yfir lánamál og áhuga á faglegri aðkomu að ákvörðunartöku í útlánum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðkoma að ákvörðunartöku í lánanefndum bankans
  • Aðstoð við uppbyggingu lánamála
  • Greining á lánamálum fyrirtækja
  • Þátttaka í þróun lánareglna
  • Aðkoma að þróun og eftirfylgni viðmiða um virðismat trygginga
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umfangsmikil reynsla og þekking af lánamálum, greiningu og virðismati fyrirtækja
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á samningum og skjalagerð
  • Góð þekking á rekstri og uppgjörum fyrirtækja
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Mjög góð enskukunnátta í ræðu og riti
Advertisement published8. May 2026
Application deadline21. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags