
Air Atlanta Icelandic
Air Atlanta var stofnað árið 1986 og hefur verið í rekstri allar götur síðan. Félagið rekur fjórtán breiðþotur af gerðinni Boeing 747-400. Höfuðstöðvar félagsins eru staðsettar á Íslandi en flugrekstur á sér stað víða um heiminn.
Félagið sérhæfir sig í leigu á flugvélum ásamt áhöfnum til annara flugfélaga og gætir þess að flugleiðir viðskiptavina okkar séu starfræktar á öruggan og hagkvæman hátt.

Áhafnafulltrúi (Crew Plan)
Flugfélagið Atlanta ehf. leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í áhafnadeild félagsins. Deildin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að flugrekstur félagsins sé studdur með rétt skipulagðri, hæfri og tiltækri áhöfn til lengri og skemmri tíma.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi alþjóðlegu umhverfi þar sem nákvæmni, skipulagshæfileikar og góð yfirsýn skipta sköpum. Starfið krefst bæði sjálfstæðra vinnubragða og náins samstarfs innan teymis og við aðrar deildir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áætla og tryggja nægjanlega mönnun flugáhafna til lengri og skemmri tíma
- Hanna og viðhalda vaktamynstrum (rotations) fyrir flugáhafnir félagsins
- Fylgjast með og stýra vinnuframboði, fríum, veikindum og samningsbundnum réttindum
- Tryggja að réttindi, þjálfun og leyfi áhafna séu í gildi hverju sinni
- Skipuleggja og samhæfa endurmenntun og þjálfun í samvinnu við þjálfunardeild
- Yfirfara launatengd gögn, álag og greiðslur til verktaka
- Halda utan um og viðhalda gögnum í áætlanakerfum og tryggja gæði upplýsinga
- Yfirfara og viðhalda nauðsynlegum skjölum flugáhafna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Mjög góð skipulagsfærni
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Mjög gott vald á ensku (annað tungumál er kostur)
- Góð Excel kunnátta og færni í gagnavinnslu
- Reynsla úr flugheimi er kostur
Advertisement published8. May 2026
Application deadline20. May 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Þjónustufulltrúi
Terra hf.

Bókari
Menntasjóður námsmanna

Sérfræðingur í lánaumsýslu
Arion banki

Neyðarverðir
Neyðarlínan

Móttökuritari SÁÁ
SÁÁ

Executive Assistant
Borealis Data Center ehf.

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sumarstarf í þjónustuveri bæjarskrifstofu
Akraneskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur
VÍS

Launafulltrúi
Þjóðleikhúsið

Fræðslustjóri
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Viðskiptastjóri
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.