

Launafulltrúi
Þjóðleikhúsið leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf launafulltrúa. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu á launavinnslu og hæfni til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði launamála. Við leggjum ríka áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt hugarfar og góða samskiptafærni. Leitað er að einstaklingi sem er talnaglöggur, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt og tekið virkan þátt í að auka skilvirkni launa- og mannauðsferla sem stuðlar að umbótum og framþróun.
-
Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum
-
Skráning, afstemmingar og eftirlit með launagögnum
-
Túlkun og eftirfylgni kjarasamninga og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála
-
Samvinna við bókhaldsteymi vegna launatengdra verkefna í uppgjörum ársins
-
Leiða reglulega endurskoðun og umbætur ferla launavinnslu og eftirfylgni
-
Samskipti og aðstoð við stjórnendur og starfsfólk
-
Samskipti við innri og ytri hagaðila varðandi launatengdar fyrirspurnir
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði, þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla
-
Reynsla af launavinnslu er skilyrði
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Góða almenna tölvukunnáttu og reynsla af launakerfum ástamt öðru kerfum, s.s. Microsoft kerfum og geta til að vinna með gögn. Þekking á umhverfi og launakerfum ríkisstofnana er kostur
-
Framúrskarandi skipulags- og samstarfsfærni, jákvætt viðmót og þjónustulund
-
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
Icelandic










